Friðrik J. Arngrímsson
Friðrik J. Arngrímsson
© BIG (VB MYND/BIG)

Búið er að ráða nýjan framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) sem mun taka við af Friðriki J. Arngrímssyni. Nýr framkvæmdastjóri var kynntur starfsfólki nú klukkan eitt en ekki verður tilkynnt fyrir en síðar í dag hver hefur verið ráðinn í stöðuna.

Ekki liggur fyrir hver viðkomandi er. Nokkuð mun þó síðan viðkomandi var ráðinn og hefur hann síðustu daga verið að ganga frá sínum málum og fá sig lausan í því starfi sem hann sinnti áður.

Friðrik J. Arngrímsson hefur verið framkvæmdastjóri LÍÚ síðastliðin þrettán og hálft ár og greindi frá því í apríl að hann ætlaði að hætta störfum. Staðan var auglýst laus til umsóknar í enda maí og voru umsækjendur 38 talsins.