Icelandic Group hefur gengið frá sölu á starfsemi fyrirtækisins í Frakklandi og Þýskalandi til fjárfesta undir forystu sjávarútvegsfyrirtækisins Pacific Andes frá Hong Kong. Um er að ræða fyrirtækin Pickenpack, Hussmann & Hahn Seafood og Pickenpack Gelmer í Þýskalandi og Frakklandi. Mun eignarhluti Pacific Andes vera 19%. Þá mun 81% vera í eigu einstaklinga frá Rússlandi og Úkraínu að sögn Ng Joo Siang forstjóra Pacific Andes. Viðskiptablaðið hefur óskað eftir upplýsingum um skilmála kaupanna, þar á meðal kaupverðið, en ekki fengið. Forsvarsmenn Framtakssjóðsins segja það trúnaðarmál að ósk kaupenda.