Aðildarsamtök Alþýðusambands Íslands undirrituðu kjarasamning við Samtök atvinnulífsins í gærkvöldi. Samningurinn er svokallaður aðfarasamningur. Auk launabreytinga gefur samningurinn aðilum 12 mánuði til að undirbúa gerð langtímasamnings sem á að tryggja stöðugleika í íslensku efnahagslífi og kaupmáttaraukningu til framtíðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ.

Þar kemur einning fram að vinna við undirbúninga slíks langtímasamnings muni hefjast strax á nýju ári. Með samningnum er tekin upp sú nýbreytni að gengið er frá sérstakri viðræðuáætlun sem unnið verður eftir með tímasettum markmiðum um framvindu.

Helstu atriði nýs kjarasamnings eru:

Kaupliðir

Almenn launahækkun: Hinn 1. janúar 2014 skulu laun hækka um 2,8%, þó að lágmarki kr. 8.000 á mánuði fyrir dagvinnu miðað við fullt starf. Aðrir kjaratengdir liðir hækka um 2,8% á sama tíma.

Sérstök hækkun kauptaxta: Í stað áðurgildandi kauptaxta komi nýir sem eru hluti samninga viðkomandi aðildarsamtaka ASÍ. Launataxtar undir 230.000 kr. á mánuði hækka sérstaklega um 1.750 kr. Kauptaxtar gilda frá 1. janúar 2014.

Lágmarkstekjur fyrir fullt starf: Lágmarkstekjur fyrir fullt starf skv. kjarasamningum viðkomandi aðildarsamtaka ASÍ skulu vera kr. 214.000 frá 1. janúar 2014 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki.

Desember- og orlofsuppbót: Desemberuppbót  miðað við fullt starf er á árinu 2014 kr. 53.600 (VR/LÍV 60.900). Orlofsuppbót (1.maí til 30. apríl) miðað við fullt starf er á árinu 2014 kr. 29.500 (VR/LÍV 22.200).

Framlög til fræðslu- og starfsmenntasjóða hækka um 0,1%.