Búist við að flug frá Keflavíkurflugvelli geti seinkað um 3-4 klukkustundir en um Reykjavíkurflugvöll um tvær klukkustundir þegar vinnustöðvun flugvallarstarfsmanna hefst á morgun. Fram kemur á ferðamálavefnum Túrista að 29 brottfarir eru á dagskrá á Keflavíkurflugvelli á morgun og áætlað að 4.000 manns eigi bókað flug. Tengiflug getur þess vegna farið úr skorðum.

Stéttarfélög flugvallastarfsmanna hafa einnig boðað vinnustöðvun 23. og 25. apríl næstkomandi náist ekki kjarasamningar fyrir þann tíma.