Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi muni hækka nokkuð hratt næstu 2-3 mánuði og fara í ríflega 7% í janúar og yfir 8% í febrúar.

Eftir það mun atvinnuleysi aukast hægar og fara í 9-10% á vormánuðum.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar um horfur í atvinnumálum.

Þar er gert ráð fyrir að hæst fari atvinnuleysi í maí samhliða því að námsmenn koma út á vinnumarkaðinn og eigi erfitt með að fá störf.

Atvinnuleysi fari þá lækkandi í júní og búast megi við að það lækki áfram fram í september í takt við hefðbundna árstíðarsveiflu.

„Erfitt er þó að spá fyrir um hversu mikil sú lækkun verður, en reiknað er með að meðalatvinnuleysi ársins 2009 verði á bilinu 7-9%,“ segir á vef Vinnumálastofnunar.

Sjá nánar vef Vinnumálastofnunar en þar má einnig finna skýrsluna í heild sinni á pdf skjali.