Burðarás hefur aukið hlut sinn í sænska tryggingafélaginu Skandia samkvæmt tilkynningu sem félagið var að senda í Kauphöllina. Burðarás hf. á nú 45.433.500 hluti í sænska félaginu sem samsvarar 4,4 % af heildarhlutafé þess. Þar af eru 11.600.000 hlutir í valréttum eða 1,1%.