Burðarás hefur fjárfest í sænska tryggingarfélaginu Skandia samkvæmt tilkynningu sem send hefur verið til Kauphallarinnar. Burðarás hf. á nú 34.633.500 hluti í sænska félaginu sem samsvarar 3,4% af heildarhlutafé þess. Markaðsvirði hlutarins er u.þ.b. 11 milljarðar króna.