Burðarás hefur fest kaup á milljón hlutum í kanadíska orkufyrirtækinu Artumas Group. Burðarás átti fyrir tæplega 650 þúsund hluti. Eftir kaupin á Burðarás því tæplega 1,65 milljón hluti í félaginu, eða sem samsvarar 9,85% af heildarhlutafé þess segir í Vegvísi Landsbankans.

Miðað við gengi bréfa í Artumas Group í kauphöllinni í Osló má áætla að markaðsvirði hlutar Burðaráss í félaginu sé rúmlega 58 m.NOK (570 m.kr).