Burðarás hefur tekið tilboði Kaupþings Banka í hlutabréf Burðaráss í Singer & Friedlander plc. Burðarás átti 16.282.420 hluti í Singer & Friedlander plc en eins og Kaupþing Banki hefur greint frá hljóðar kauptilboðið upp á 316 pens. Tilkynning þessa efnis var send inn í Kauphöllina.