Greint er frá því á vef Fjármálaeftirlitsins að því hafi borist ábending um að fulltrúar félagsins Midway Management, sem gefur sig út fyrir að bjóða upp á ýmiss konar fjárfestingarþjónustu í Hong Kong, hafi að undanförnu sett sig í samband við Íslendinga í þeim tilgangi að selja bandarísk hlutabréf.

„Fjármálaeftirlitið vekur sérstaka athygli á því að félagið hefur hefur ekki leyfi til að bjóða upp á þessa þjónustu hér á landi," segir á vef FME.