Byggðastofnun hefur selt eignarhlut sinn í nýsköpunarfyrirtækinu Rennex á Ísafirði. Rennex hefur sérhæft sig í framleiðslu á renndum og fræstum íhlutum bæði úr plasti og málmi, fyrir tækjabúnað í matvælaframleiðslu. Í frétt á heimasíðu Buyggðastofnunar kemur fram að rekstur félagsins hefur gengið vel, en meðal stærstu viðskiptavina má nefna fyrirtækin 3xStál, Marel og Sæplast.

Þekktasta framleiðsluvara fyrirtækisins er þó án efa fyrsta íslenska fluguveiðihjólið, sem náð hefur miklum vinsældum meðal stangveiðmanna. Kaupandi að hlut Byggðastofnunar er 3xStál.