Byggðastofnun og Fjármálaeftirlitið (FME) hafa gert með sér sátt vegna brots Byggðastofnunar á lögum um verðbréfaviðskipti. Byggðastofnun gengst við að hafa brotið gegn lögum, með því að hafa ekki skilað lista yfir fruminnherja til Fjármálaeftirlitsins innan tilskilins frests þrátt fyrir áminningu þar um. Byggðastofnun er útgefandi skráðra skuldabréfa.
Fjárhæð sáttarinnar er 400 þúsund krónur og var það mat FME að fjárhæðin væri hæfileg.