Hagnaður Byggðastofnunar fyrstu sex mánuði ársins nam 14,8 milljónum króna samanborið við 991,7 milljóna króna tap á sama tímabili 2010. Skýrist þetta fyrst og fremst með lægri framlögum á afskriftarreikning útlána og gengishagnaði upp á 41,6 milljónir króna í stað 118 milljóna krkóna gengistaps árið 2010. Framlög á rekstrarreikning námu 273,4 milljónum króna samanborið við 1.102 milljónir króna á sama tímabili 2010.

Hreinar vaxtatekjur námu 332 milljónum króna og hafa hækkað um 28% frá sama tímabili 2010. Hreinar vaxtatekjur stofnunarinnar námu 47,5% af vaxtatekjum.

Eignir námu 17,0 milljörðum króna og hafa lækkað um 1,5  milljón króna frá áramótum. Þar af voru útlán og fullnustueignir 14,4 milljarðar. Skuldir námu 17,3 milljörðum og hafa hækkað um 11 milljónir frá áramótum.

Í lok tímabilsins stóðst stofnunin ekki eiginfjárkröfur sem gerðar eru til fjármálafyrirtækja. Það leiðir til þess að ríkissjóður verður sem eigandi stofnunarinnar að taka til þess afstöðu á síðari hluta ársins hvort halda beri starfseminni áfram í óbreyttri mynd, og þar með nýju eigin fé. Eiginfjárhlutfallið nam -2,41% en samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki skal það að lágmarki vera 8%

Byggðastofnun
Byggðastofnun
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)