Öllu starfsfólki byggingafyrirtækisins Ans í Borgarbyggð hefur verið sagt upp störfum en samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu er vonast til þess að hægt verði að endurráða sem flesta.

Auk þess hefur verið ákveðið að hætta við fyrirhugaða sameiningu á rekstri Ans ehf. og Sólfells ehf. og Sigurður Guðmundsson, sem verið hefur framkvæmdastjóri Sólfells og tók sæti í framkvæmdastjórn Ans í upphafi árs hefur látið af störfum hjá félaginu.

Þetta kemur fram á vef Skessuhorns.

Þar segir að á morgun verður fundur með starfsmönnum Ans í Borgarbyggð en Jón Pálsson stjórnarformaður fyrirtækisins segir að nú sé unnið að því að skýra bæði stöðu starfsfólks og fyrirtækisins.

„Við vonumst til þess að geta gert þetta eins sársaukalítið og mögulegt er, þótt auðvitað sé aldrei jákvætt að þurfa að gera slíkar ráðstafanir,” segir hann í samtali við Skessuhorn.

„Staðan á þessum markaði er afleit eins og allir vita. Þetta er hinsvegar alltaf erfitt, ekki síst í svona litlu samfélagi.”

Jón segir að uppsagnirnar hafi komið starfsfólki nokkuð á óvart og að þungt sé í fólki.  „Þetta er hinsvegar uppsafnaður vandi sem þurfti að taka á.”

Hvað örlög Sólfells varðar segir Jón að þau séu ekki alfarið í höndum Ans.

„Bæði lánadrottnar og aðrir hagsmunaaðilar hafa sitt að segja þar. Við erum eigendur hlutafjár í Sólfelli og lítum svo á að það hafi tapast. Nú á sér stað ákveðin uppstokkun og það er ljóst að heilmikið kemur til með að breytast. Það eru verkefni í gangi fram eftir árinu hjá okkur en við sjáum hinsvegar ekki nógu langt fram í tímann núna til að geta haldið óbreyttu starfsmannahaldi. Við vonumst hinsvegar til þess að geta náð okkur í fleiri verkefni og byggt áfram upp starfsemi á svæðinu þegar markaðurinn tekur við sér að nýju.”