Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan febrúar 2015 er 123,2 stig sem er lækkun um 0,1% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands .

Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,8% (áhrif á vísitölu -0,2%) og verð á innlendu efni hækkaði um 0,1 % (áhrif á vísitölu 0,1%).

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,6%.