Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan júlí, er 372,0 stig og hefur hækkað um 0,30% frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir ágúst. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 6,4%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands.