Hlutfallslegt framlag byggingariðnaðarins til landsframleiðslu sveiflast mun meira en í öðrum atvinnugreinum á Íslandi. Þetta kom m.a. fram í máli Ásdísar Kristjánsdóttur forstöðumanns efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins á ráðstefnu Samtaka iðnaðarins, stefnumót íslensks byggingariðnaðar, sem fram fór á Grand Hótel Reykjavík í dag. Í nýrri greiningu efnahagssviðs SA kemur fram að framlag byggingariðnaðarins til landsframleiðslu mældist hæst um 12% árið 2006 en hefur verið um 5% eftir efnahagsáfallið 2008.

Atvinnugreinin er mjög næm fyrir sveiflum í hagkerfinu og skreppur hraðar saman í niðursveiflu en aðrar framleiðslugreinar en tekur jafnframt hraðar við sér þegar hagkerfið vex á ný. Þrátt fyrir að ekki sé um séríslenskt samband að ræða þá býr byggingariðnaðurinn á Íslandi við meiri sveiflur en almennt er í öðrum iðnríkjum, að því er kemur fram í frétt á vefsíðu SA.

Framleiðni í byggingariðnaði hefur frá árinu 1997 farið úr því að vera mikil í að vera lítil samanborið við aðrar atvinnugreinar. Óvissa og sviptingar í rekstrarskilyrðum fyrirtækja draga úr samkeppnisstöðu þeirra og leiða til minni framleiðni og lakari kaupmáttar.