Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um 0,1% á milli mánaða í september og stendur hún í 118,7 stigum, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar .

Fram kemur á vef Hagstofunnar að verð á innlendu efni hækkaði um 0,4% en verð á innfluttu efni um 0,2%.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,1%.