Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan ágúst 2015 er 128,0 stig sem er 0,1% hækkun frá fyrri mánuði, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands .

Þar segir að hækkunina megi aðallega rekja til  0,1% hækkunar innlends efnis milli mánaða (áhrif á vísitölu 0,1%).

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,9%. Vísitalan gildir í september 2015.