Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan september 2017 er 135,1 stig og hækkar um 1,5% frá ágúst að því er kemur fram í tölum Hagstofu Íslands.

Innlent efni hækkaði um 4,1%, sem hafði 1,5% áhrif á vísitölu. Vélar, flutningur og orkunotkun hækkaði um 0,7% milli mánaða (0,1% áhrif á vísitölu) en verð á innfluttu efni lækkaði um 0,6% (-0,1% áhrif á vísitölu). Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,0%. Vísitalan gildir í október 2017.