Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan maí 2015 er 123,2 stig (desember 2009=100) og er óbreytt frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofu Íslands .

Þar segir að hverfandi breytingar hafi verið í undirliðum vísitölunnar þennan mánuðinn.  Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 2,2%. Vísitalan gildir í júní 2015.