Bilið á milli byggingarkostnaðar og húsnæðisverðs hefur verið að aukast að undanförnu segir í Morgunkorni Íslandsbanka. Hratt hækkandi verð á íbúðahúsnæði hefur þannig leitt til þess að fleiri sjá sér nú hag í því en áður að fara út í nýbyggingar. Þessu til staðfestingar hafa lán Íbúðarlánasjóðs til nýbygginga á íbúðarhúsnæði vaxið um ríflega 65% á hlaupandi verði á fyrstu 6 mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil ársins 2003.

"Byggingarvísitalan hefur hækkað um 5,2% á síðustu tólf mánuðum samkvæmt tölum sem Hagstofan birti í morgun. Húsnæðisverð, mælt sem undirliður í neysluverðsvísitölunni, hefur til samanburðar hækkað um 7,1% á sama tímabili," segir í Morgunkorni.