Vísitalan byggingarkostnaðar er aðmeðaltali 5,3% hærri á þessu ári en árið 2004. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.

Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan desember, er 316,7 stig (júní 1987=100), hækkar um 0,03% frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir janúar.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 3,9%.