Hagar sóttu um lóð að Kornagörðum 1 í Reykjavík þann 3. desember síðastliðinn. Umsókn félagsins hefur nú verið samþykkt af Faxaflóahöfnum. Stjórn Haga samþykkti í dag fjárfestingaáætlun að upphæð allt að 1,3 milljörðum króna til verkefnisins en félagið hyggst byggja nýtt vöruhús undir starfsemi Banana ehf. Lóðin er samkvæmt gildandi deiliskipulagi 16.008 m2 en áætlanir eru um að reisa allt að 4.500 m2 húsnæði í fyrstu.

Starfsemi Banana er í dag í 4.400 m2 húsnæði við Súðuvog 2e í Reykjavík. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að húsnæðið sé komið til ára sinna og orðið óhentugt fyrir núverandi starfsemi sem og vaxtamöguleika fyrirtækisins. Auk þess hafi skipulagsmál Reykjavíkurborgar áhrif á framtíðarmöguleika á núverandi lóð.

Gangi áætlanir félagsins eftir er gert ráð fyrir að rekstur Banana flytji í nýtt húsnæði á sumarmánuðum 2015.