Félög Kristins Þórs Geirsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Nýherja, og Hauks Guðjónssonar, fyrrverandi forstjóra Ingvars Helgasonar og B&L, hafa nú keypt byggingarrétt við Skyggnisbraut í Úlfársdalnum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Kaupverðið nemur 442 milljónum króna og stefnt er að því að byggja tvær blokkir. Samtals á því að byggja 96 íbúðir til leigu.

Kristinn Þór segir í samtali við Morgunblaðið að fleiri fjárfestar komi að verkefninu og að þeir tveir eigi ekki svona háar fjárhæðir. Jafnframt segir hann að þörf sé á íbúðaleigufélagi þar sem mikill skortur sé á leiguíbúðum.