Svar tækni ehf. kynnir byltingu fyrir íslenskan símamarkað. Loksins býðst öllum að notfæra sér IP-tæknina til hagræðingar í símamálum. Öll þekkjum við tölvupóst og allir þekkja kostnaðinn við slík samskipti. Núna býðst að hringja hvert sem er á sömu forsendum.

Svar tækni er að hefja markaðssetningu á símaboxi sem gerir kleift að hringja frítt í alla þá sem hafa slík símabox hvar sem er í heiminum. Verðið á símaboxinu í verslun Svar tækni ehf er 14.900 krónur. Kostnaður við að hringja á milli er enginn.

Það sem þarf til er ADSL tenging og laust ?Ethernet" nettengi hjá báðum aðilum, sem tengist við símaboxið frá Svar tækni ehf. Símaboxið tengir gamla símann þinn við netið og þannig er hægt að hringja fyrir 0,- krónur á milli þeirra. Einnig er frítt að hringja í öll 800 númer í norður ameríku.

Enginn aukakostnaður fylgir þessu hvorki mánaðargjöld eða annar kostnaður, símaboxið úthlutar þér símanúmeri sem gildir hvar sem er í heiminum. Þú getur tekið símaboxið með þér hvert sem er og tengt það við netið eins og áður hefur verið lýst og þannig flutt símann þinn og númerið með þér hvar sem þú ert.

Sá sem er með símabox getur hringt hvert sem er í heiminu, en þá reiknast staðargjald á það samtal. Ef t.d. hringt er til Englands þá er það eins og um staðarsamtal þar sé að ræða.