Byr sparisjóður féll í liðinni viku og stija margir stofnfjáreigendur eftir með sárt ennið. Rúmlega 1.500 manns áttu stofnfé í sjóðnum en í gegnum áratugi hafði stofnfé í sjóðnum í mörgum tilvikum gengið kynslóða á milli sem sparnaður.
Þá hefur stofnfjáraukning í sjóðnum á árinu 2007 reynst mörgum stofnfjáreigendum afar þungbær en Glitnir lánaði fyrir aukningunni, oft í erlendri mynt. Skuldir hafa því hækkað en eignir að baki þurrkast út.
Á meðfylgjandi lista má sjá hverjir voru stórir eigendur stofnfjár skömmu áður en hann féll. Þar á meðal voru lífeyrissjóðir, eignarhaldsfélög í eigum banka og síðan fjölmargir einstaklingar.
Þar á meðal var Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra en hann átti stofnfé í sjóðnum fyrir 5,6 milljónir að nafnvirði og tók hann meðal annars þátt í stofnfjáraukningunni 2007 og fjármagnaði hana með lánum, eins og hann greindi frá í viðtali við Viðskiptablaðið fyrr á árinu.
Nafn Stofnfé Eignarhlutur
- Landsbanki Íslands hf 1.185.848.346 7,584%
- Heiðarsól ehf 1.173.627.061 7,506%
- Icecapital ehf 959.245.570 6,135%
- CDG ehf 638.706.890 4,085%
- Landsbanki Lux (Kilimanjaro S.a.r.l) 556.957.854 3,562%
- Fjárfestingafélagið Klettur ehf 527.786.435 3,375%
- Breiðengi ehf 520.573.361 3,329%
- FI fjárfestingar ehf 484.718.735 3,100%
- MB fjárfestingafélag ehf 414.761.809 2,653%
- Kaupthing Bank hf. 316.671.731 2,025%
- Exeter Holdings ehf 306.295.026 1,959%
- Rona Financial Trading Ltd 299.433.640 1,915%
- Sólstafir ehf 299.426.267 1,915%
- Fons hf 211.114.487 1,350%
- Hagar hf 207.475.442 1,327%
- Skarðshyrna ehf 151.114.487 0,966%
- Sameinaði Lífeyrissjóðurinn 141.372.454 0,904%
- Hilda hf 120.187.613 0,769%
- Helgi Vilhjálmsson 105.557.287 0,675%
- Þórður Magnússon 105.557.287 0,675%
- Karen Millen 105.557.243 0,675%
- Víkur ehf 103.002.638 0,659%
- Bernhard ehf 99.000.000 0,633%
- Sparisjóðurinn í Keflavík 75.033.712 0,480%
- Bert Martin Hansson 71.878.599 0,460%
- Einar Örn Jónsson 62.296.954 0,398%
- Eiður Gunnlaugsson 62.185.116 0,398%
- Jón Kr. Sólnes 62.185.116 0,398%
- Skúli Ágústsson 47.314.756 0,303%
- VBS Fjárfestingarbanki hf 44.774.895 0,286%
--- --- ---
- Þrjátíu stærstu samtals: 9.459.660.811 60,50%
- Aðrir stofnfjáreigendur samtals: 6.176.595.779 39,50%
- Stofnfjárhlutir samtals: 15.636.256.590 100,00%