Byr hf. hefur lagt fram skaðabótakröfu á hendur þeim sem hafa verið ákærðir vegna lánveitinga í Exeter holding málinu.  Í fréttatilkynningu segir að stjórnendur Byr hf. vilji taka eftirfarandi sérstaklega fram: „Enginn þeirra sem  ákærðir eru í málinu starfa hjá Byr hf.  Auk þess hafa þegar verið gerðar verulegar breytingar á innra skipulagi félagsins til að tryggja að viðlíka mál geti ekki komið upp innan félagsins."

Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld kom fram að embætti sérstaks saksóknara hefði gefið út sínar fyrstu ákærur. Í fréttinni sagði að Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs og Ragnar Zophonías Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri og ónafngreindur þriðji maður væru ákærðir fyrir umboðssvik vegna lánveitingar Byrs sparisjóðs til félagsins Exeter Holding. Á mbl.is kom fram að þriðji maðurinn væri Styrmir Þór Bragason fyrrverandi forsjtóri MP banka.

Byr fórnarlamb

Í fréttatilkynningu frá Byr er þetta haft eftir Jóni Finnbogasyni, núverandi forstjóra Byrs: „Það er mikilvægt að við horfum til baka og gerum hreint fyrir okkar dyrum og áttum okkur á því hvað fór úrskeiðis. Við lítum á það þannig að við höfum verið fórnarlömb í þessu máli þar sem miklir fjármunir töpuðust í tengslum við umræddar lánveitingar.  Sú skaðabótakrafa sem nú hefur verið lögð fram er liður í því ferli."