Samkomulag náðist í nótt um framtíð Byrs Sparisjóðs. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins mun ríkið leggja sjóðnum til eigið fé gegn því að erlendur kröfuhafar hans afskrifi um 50 til 60 prósent krafna sinna á bankann. Hann mun því geta starfað áfram í óbreyttri mynd gangi samkomulagið eftir.

Ekki er enn ljóst hvort að erlendu kröfuhafarnir fái stofnfé í staðinn fyrir afskriftirnar.

Fjármálaráðuneytið samþykkti þessa niðurstöðu eftir langan fund í nótt. Breska ráðgjafarfyrirtækið Hawkpoint kom að vinnunni fyrir hönd ráðuneytisins. Fulltrúar erlendu kröfuhafanna fóru af landi brott í morgun.

uppfært klukkan 10:01

Fjármálaráðuneytið sendi rétt í þessu frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu um málefni Byrs:

Fjármálaráðuneytið fundaði í gær með stjórnendum Byrs sparisjóðs, ásamt ráðgjöfum beggja aðila og fulltrúum kröfuhafa. Fjallað var um forsendur fyrir því að stjórnvöld leggi nýtt stofnfé í Byr vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar sparisjóðsins, sem ætlað er að tryggja að hann uppfylli skilyrði fyrir eiginfjár- og lausafjárstöðu og um rekstrarhæfi.

Að mati ráðuneytisins náðist á fundinum mikilvægur áfangi í átt að endanlegu samkomulagi og að því að treysta varanlega fjárhagslegar stoðir Byrs. Frekari viðræður við Byr og kröfuhafa um endanlega útfærslu á fyrirliggjandi lausn eru fyrirhugaðar í upphafi nýs árs.

Þetta er í samræmi við markmið stjórnvalda um að styðja við endurskipulagningu sparisjóðakerfisins á Íslandi. Með lögum nr. 125/2008 var fjármálaráðuneytinu veitt heimild til að leggja sparisjóðum til nýtt stofnfé. Niðurstöðu varðandi aðra sparisjóði er að vænta á næstunni.