Í tilkynningu frá Byr í kjölfar birtingu uppgjörs sparisjóðsins á öðrum árfjórðungi segir að grunnrekstur Byrs hafi gengið vel fyrstu sex mánuði ársins og hreinar vaxtatekjur hafa aldrei verið hærri „þrátt fyrir aukinn fjármögnunarkostnað,“ eins og það er orðað í tilkynningunni.

Þá kemur fram að hreinar vaxtatekjur standa undir samanlögðum rekstrargjöldum og virðisrýrnun útlána.

Einnig kemur fram að hreinar rekstrartekjur dragast verulega saman milli tímabila og má, samkvæmt tilkynningunni, rekja helstu ástæður þess til varúðarniðurfærslna á eignasafni sparisjóðsins vegna óhagstæðra markaðsaðstæðna.

„Að stærstum hluta er um óinnleyst tap að ræða. Það sem af er ári hefur Byr hagrætt í rekstri sem mun skila sér í lægri rekstrarkostnaði á komandi misserum,“ segir í tilkynningunni.

Veruleg aukning varúðarframlags í afskriftarreikning

Tekin var ákvörðun um að auka verulega varúðarframlag í afskriftarreikning útlána en samkvæmt tilkynningunni frá sparisjóðnum var það gert í ljósi versnandi efnahagsaðstæðna sem einkennst hafa af lækkunum á hlutabréfamörkuðum, gengisfalli krónunnar, háum stýrivöxtum og óvissu um framtíðarhorfur.

Þá kemur fram að heildareignir Byrs hafa aukist um 22,4% frá áramótum og nema 226.183,7 milljónir króna á miðju ári.

„Aukninguna má að mestu leyti rekja til sameiningar við Sparisjóð Norðlendinga, vaxandi verðbólgu og gengislækkunar krónunnar. Lausafjárstaða Byrs er sterk sem kemur sér vel við núverandi aðstæður á fjármagnsmörkuðum og aðgengi Byrs að lausafé er gott. Innlán hafa aukist um 33,4% á tímabilinu,“ segir í tilkynningunni.

„Eiginfjárstaða Byrs er mjög traust og er eiginfjárhlutfall 23,5% sem er langt umfram þá 8% lágmarkskröfu sem almennt er gerð til fjármálafyrirtækja. Byr er því ákaflega vel í stakk búinn til að takast á við óvenjulegar og krefjandi aðstæður sem nú ríkja á mörkuðum.“