Þeir einstaklingar í viðskiptum við Byr sparisjóð sem tekið hafa erlend lán með veði í fasteign geta nú leitað eftir lækkun á greiðslubyrði, hvort sem er til lengri eða skemmri tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Byr en hægt er að velja um að greiða fasta reglulega fjárhæð eða greiðslujafnaða fjárhæð.

Fram kemur að í báðum tilfellum miðast greiðslubyrði (afborgun og vextir) lánsins við greiðslubyrði eins og hún var 2. maí 2008 en ekki við gengi viðkomandi gjaldmiðils eins og verið hefur fram til þessa. Hafi lán verið tekið eftir 2. maí 2008 miðast greiðslubyrði við fyrsta gjalddaga þess.  Þessi þjónusta er viðskiptavinum Byrs að kostnaðarlausu.

Þá kemur fram að þegar greiðslubyrði er fest eða greiðslujöfnuð verða afborganir inn á lánið sjálft eftir sem áður bundnar við gegni viðkomandi gjaldmiðils. Sá munur sem myndast bætist við höfuðstól láns eða dregst frá honum, allt eftir gengisþróun íslensku krónunnar og við það lengist lánstíminn eða styttist.

Sé mismunur til staðar eftir að upphaflegum lánstíma lýkur gefst viðskiptavinum kostur á að lengja lánið um allt að helming af upphaflegum lánstíma. Hægt er að segja upp fastgreiðslum og greiðslujöfnun hvenær sem er á lánstímanum.