Byr hefur gert hluthöfum Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna hf. (VSP) tilboð um kaup á rekstri félagsins og samþykkti hluthafafundur VSP að taka tilboðinu að því er kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar. Kaupverðið er trúnaðarmál. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppnis- og Fjármálaeftirlits.

Starfsmenn Byrs og VSP munu hafa samband við viðskiptavini VSP á næstunni.