Stjórn Byrs sparisjóðs ákvað í morgun að hætta sameiningarviðræðum við Glitni banka hf. en viðræðurnar sem hófust laugardaginn 20. september síðastliðinn  voru ennþá á frumstigi, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Varðandi  ástæður þess að viðræðum var hætt vísast til fréttatilkynningar Glitnis banka hf. fyrr í dag.

Staða Byrs sparisjóðs er sem fyrr sterk. Áhersla verður lögð á að viðhalda núverandi styrk sparisjóðsins.