Jón Kr. Sólnes, stjórnarformaður, hefur tilkynnt stjórn Byrs, að hann muni tímabundið láta af stjórnarstörfum fyrir sparisjóðinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Við stjórnarformennsku tekur Guðmundur Geir Gunnarsson sem verið hefur varaformaður stjórnar. Samhliða þessu tekur Þorsteinn Ólafur Þorsteinsson sæti í stjórn Byrs.