Byr sparisjóður hefur aukið hlut sinn í fjárfestingafélaginu Shelley Oak Plc. í Bretlandi, sem sérhæfir sig í brúarfjármögnun á íbúðarhúsnæði í London og nágrenni. Á Byr nú 50,1% eftir hlutafjáraukninguna.
Í tilkynningu vegna aukningar hlutaféssins segir að Shelley Oak Plc hafi verið stofnað í byrjun þessa árs og er megintilgangur þess að fjárfesta í fasteignatengdum verkefnum. Aðallega er um að ræða umbreytingarverkefni í suðausturhluta Englands með megináherslu á London og nágrenni. Veitir félagið ennfremur alhliða ráðgjöf og aðstoð við fasteignakaup og fasteignatengd verkefni.
Auk Byrs eru eigendur Shelley Oak Plc, Saxbygg, með 12,1%, Darren Schindler, framkvæmdarstjóri félagsins, Quarcus, félag í eigu Árna Helgasonar, Peter J. Bennison og breska félagið Fidelity með samtals 37,8%.
Stækkun framundan
Á skrifstofu Shelley Oak við Finchley Road í London eru nú fimm starfsmenn, þar af einn Íslendingur, Árni Helgason, sem er starfandi stjórnarformaður félagsins. Framkvæmdarstjórinn, Darren Schindler, var áður framkvæmdarstjóri fyrirtækjasviðs Bank of Scotland.
Bjarna T. Jónsson hjá Byr segir í tilkynningunni að stefnt sé að mikilli aukningu verkefna hjá Shelley Oak á næstu mánuðum og er m.a. gert ráð fyrir að í lok næsta árs, 2008, verði um tuttugu starfsmenn hjá félaginu.
Nýtt dótturfélag, Lava Capital
Auk þess sem Byr hefur aukið hlut sinn í Shelley Oak hefur Byr stofnað nýtt fjárfestingafélag, Lava Capital, sem mun sinna svipuðum fjármögnunarverkefnum og Shelley Oak.
Shelley Oak mun sjá um að stýra þeim verkefnum samkvæmt samningi við Lava Capital. Félagið er alfarið í eigu Byrs og segir Bjarni Tómas, framkvæmdarstjóri Lava Capital, ástæðu stofnunar félagsins vera þá að nýta betur þau tækifæri sem gefast á þessum markaði til að auka eigið fé félagsins, samkvæmt því sem segir í tilkynningunni.