Byr sparisjóður hefur opnað reikninga erlendis í öllum helstu myntum; EUR, GBP, USD, DKK, NOK, SEK, CAD, CHF og JPY og er því kominn með sjálfstæða greiðslumiðlun fyrir erlend viðskipti.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Athygli.

Þar segir að eftir fall Sparisjóðabankans hafi Byr tekið að sér erlenda og innlenda greiðslumiðlun fyrir sig og aðra sparisjóði í landinu í gegnum reikninga Seðlabanka Íslands.

„Sú lausn var aðeins hugsuð sem tímabundin því markmiðið var ávallt að gera Byr og sparisjóðina sjálfstæða er kæmi að erlendum viðskiptum," segir í tilkynningunni.

„Með þessari breytingu er Byr sparisjóður að færa sig enn nær auknu samstarfi og liðsheild sparisjóðanna í landinu. Vonast Byr að geta styrkt tengsl sín enn frekar við sparisjóðina og áfram verið þeirra helsti bakhjarl og samstarfsaðili," segir enn fremur í tilkynningunni.