Kauphöll Íslands hefur samþykkt aðild BYR - sparisjóðs að Kauphöllinni, segir í tilkynningu.

Stjórn Sparisjóðs Vélstjóra hefur ákveðið að breyta nafni félagsins í BYR - sparisjóður. Félagið hefur óskað eftir að breyta auðkenni félagsins í BYR.

Auðkenni BYR - sparisjóðs í viðskiptakerfi Kauphallarinnar er BYR og verður aðildin virk 26. mars næstkomandi Kauphallaraðild Sparisjóðs Hafnarfjarðar (SPH) mun falla niður á sama tíma, segir í tilkynningunni.