Skarphéðinn Þráinsson sigraði í ljósmyndasamkeppni Canon á Íslandi og Ljósmyndakeppni.is.  Þema keppninnar var Jólakort og bar Skarphéðinn sigur úr býtum með myndinni Jólanótt en hann tók myndina á Canon EOS 5D.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýherja.

Þar kemur fram að Skarphéðinn hlaut í verðlaun Canon PIXMA MP600R fjölnota ljósmyndaprentara.

Það má geta þess að Skarphéðinn sigraði einnig í ljósmyndasamkeppni Omnis, Canon og Ljósops sem haldin var í september sl. en hann sigraði þá með mynd af gamla Garðskagavitanum og ber heitið Gullna ljósið.