Canopy er nýtt hótelvörumerki í eigu Hilton International sem mun opna sitt allra fyrsta hótel í Reykjavík í mars 2016. Canopy Reykjavik | City Centre er í flokki lúxushótela og verður staðsett á Hljómalindarreitnum í miðbæ Reykjavíkur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Það eru Icelandair hótel sem reka munu Canopy Reykjavik | City Centre en þau hafa átt í samstarfi við Hilton International síðan í október 2007, en stærsta hótel félagsins, Hilton Reykjavík Nordica, er með sérleyfissamning við Hilton International.

„Í upphafi framkvæmda við Hljómalindarreitinn lögðum við upp með að þarna risi nýtt Icelandair hótel,“ segir Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair hótela. „Þegar okkur hinsvegar bauðst tækifæri til að opna fyrsta hótel sinnar tegundar í heiminum hér í Reykjavík, og njóta þar góðs af gríðarlegri markaðssetningu áfangastaðarins um heim allan gegnum öflugt sölukerfi Hilton International, þá þurftum við ekki að hugsa okkur tvisvar um,“ segir hún.

115 herbergi og veitingastaður á efstu hæð

Canopy Reykjavik | City Centre verður með 115 herbergjum að meðtöldum svítum. Hótelið verður í samræmi við hugmyndafræði Canopy þar sem mikil áhersla er lögð á fallega hönnun og afslappað og þægilegt umhverfi. Í bakgarði verður veitingarekstur sem mun njóta sín á sólríkum dögum. Á efstu hæð verða bar og veitingastaður ásamt sérstakri matsölu þar sem nálgast má fjölbreytt úrval ferskra smárétta úr sérvöldu íslensku hráefni sem hótelgestir geta tekið með sér í nesti áður en þeir leggja af stað í næstu skoðunarferð.

„Reykjavík er hlaðin orku og ákaflega spennandi áfangastaður ferðamanna um þessar mundir. Þess vegna finnst okkur mjög viðeigandi að fyrsta hótelið undir merki Canopy opni hér á Íslandi,“ segir Patrick Fitzgibbon, aðstoðarframkvæmdastjóri þróunar hjá Hilton International.

„Ísland er orðinn einn vinsælasti áfangastaður heims í augum ferðamanna. Það er ekki síst að þakka þrotlausu markaðsstarfi Icelandair sem vinnur stöðugt að þróun leiðakerfisins og fjölgun spennandi áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku. Fjöldi ferðamanna til Íslands hefur meira en þrefaldast undanfarin 15 ár og Canopy Reykjavik | City Centre verður spennandi viðbót í fjölbreytta og þróttmikla ferðaþjónustu í höfuðborginni.“