Tölvuteiknimyndafyrirtækið CAOZ hyggst ráða fjölda fólks til sín á næstunni en greint var frá því í dag að nýr hópur fjárfesta væri gengin til liðs við félagið. Tölvuteiknimyndin Þór – í Heljargreipum skapar í heild um 80 ársverk á Íslandi segir í tilkynningu félagsins. Um 60% af framleiðslunni og kostnaði mun falla til hjá CAOZ á Íslandi.

“Hjá CAOZ er frábært starfsfólk sem hefur byggt upp mikla þekkingu á tölvuteiknimyndagerð í gegnum árin og stendur að okkar mati mjög framarlega á sínu sviði”, segir Skúli Mogensen, stjórnarformaður Títan fjárfestingafélags í tilkynningu vegna kaupanna. “Það verður mjög spennandi að taka þátt í uppbyggingu félagsins á næstu árum.”

Miklir möguleikar

“Við sjáum mikla möguleika í CAOZ til framleiðslu tölvuteiknimynda og afleiddra vara fyrir alþjóðlegan markað og ætlum okkur að byggja upp tölvuteiknimyndafyrirtæki á heimsmælikvarða hér á Íslandi”, segir Hilmar Gunnarsson sem bætir við að þeir Skúli muni taka virkan þátt í störfum félagsins.

”Verkefni Caoz skapa umtalsvert streymi gjaldeyris inn í landið og eru félög af þessu tagi mjög mikilvæg fyrir uppbyggingu atvinnulífs framtíðarinnar.  Aðkoma Títan og Hilmars að félaginu er því mikil lyftistöng“, segir Sigurður I. Björnsson, stjórnarmaður í Bru II Venture Capital Fund.

Þór – í Heljargreipum er fyrsta íslenska tölvuteiknimyndin í fullri lengd og hefur verið í þróun og framleiðslu hjá CAOZ um nokkurra ára skeið. Kvikmyndin er byggð á Norrænni goðafræði og segir frá baráttu Þórs og hamarsins Mjölnis við jötna og Hel – hina illu drottningu Undirheima. Myndin er gamansöm ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna og eru persónur myndarinnar og umhverfi byggðar á lýsingum í Snorra Eddu.  Handritið er skrifað af Friðriki Erlingssyni og leikstjórn er í höndum þeirra Óskars Jónassonar og Gunnars Karlssonar, sem einnig hefur hannað allar persónur og myndræna umgjörð myndarinnar. Myndin er framleidd af Hilmari Sigurðssyni og Arnari Þórissyni hjá CAOZ.

60% af framleiðslunni hér á landi

“Það er sérstaklega ánægjulegt að fá til liðs við okkur svo öfluga og reynslumikla fjárfesta og þannig renna enn styrkari stoðum undir þetta framsækna sprotafyrirtæki” segir Arnar Þórisson, stjórnarformaður CAOZ. “Nú þegar er kominn í gang stærsti og mannfrekasti hluti framleiðsluferilsins á Þór og mun félagið auglýsa eftir fjölda starfsfólks á næstunni.”

Þór – í Heljargreipum er styrkt af Kvikmyndasjóði Íslands og Iðnaðarráðuneytinu, auk fjölda evrópskra kvikmyndasjóða. Myndin er samframleiðsla milli CAOZ, Ulysses Film í Þýskalandi og Magma Productions á Írlandi. Um 60% af framleiðslunni og kostnaði mun falla til hjá CAOZ á Íslandi. Dreifingarfyrirtækið Telepool í Þýskalandi hefur tryggt sér heimsdreifingarrétt á myndinni.