Dirk Beckers, framkvæmdastjóri aðgerða Evrópusambandsins í loftslagsmálum, og Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, skrifuðu í gær undir tæpra 600 milljóna króna styrktarsamning nýsköpunarsjóðs sambandsins við frekari þróun Carbfix-kolefnisbindingaraðferðarinnar við Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar. Nemur styrkurinn tæpum helmingi heildarkostnaðar við verkefnið, sem kallast Silfurberg og miðar að sporlausri orkuvinnslu í virkjuninni. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Undirritunin fór fram í Brussel á einum hliðarviðburða COP26 þar sem Beckers greindi frá stuðningi sambandsins við þrjú verkefni sem öll miða að kolefnishlutleysi. Edda Sif flutti ávarp á málþingi sem Evrópusambandið gekkst fyrir í tilefni samninganna,“ segir í fréttatilkynningu.

Þar er jafnframt bent á að Carbfix hafi þegar komið við sögu á COP26, sem nú standi yfir. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi vikið sérstaklega að fyrirtækinu og aðferð þess til varanlegrar kolefnisbindingar í ávarpi við setningu loftslagsráðstefnunnar í Glasgow.

„Markmið Silfurbergs-verkefnisins er að byggja nýja hreinsistöð við Hellisheiðarvirkjun sem mun fanga nær allt koldíoxíð og brennisteinsvetni úr útblæstri virkjunar okkar sem síðan verður dælt niður í nálæg basaltberglög til varanlegrar steinrenningar með Carbfix tækninni. Þar með mun Orka náttúrunnar skipa sér í fremsta flokk grænnar jarðvarmanýtingar með sporlausri framleiðslu rafmagns og varma," segir Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra ON, í fréttatilkynningu.

Aðferð Carbfix virki gegn loftslagsvánni

„Carbfix hefur þróað tækni fyrir varanlega bindingu koldíoxíðs við Hellisheiðarvirkjun frá árinu 2007 í samstarfi við innlendar og erlendar rannsóknastofnanir. Tæknin krefst einungis rafmagns og vatns og hefur starfsemin óveruleg umhverfisáhrif.  Tæknin felur í sér að leysa koldíoxíð  í vatni og dæla niður í basaltberggrunninn þar sem náttúruleg ferli steinrenna það til frambúðar. Með þessu móti er koldíoxíðið varanlega bundið í steindum djúpt í berggrunninum og þannig komið í veg fyrir áhrif þess á loftslagið. Einnig er hægt að beita aðferðinni fyrir aðrar gastegundir á borð við brennisteinsvetni, en það hefur einnig verið fangað frá virkjuninni og dælt niður frá árinu 2014,“ segir í tilkynningunni.

Núverandi hreinsistöð Hellisheiðarvirkjunar fangi um 30% koldíoxíðs og um 75% brennisteinsvetnis úr útblæstri hennar, eða um 12 þúsund tonn af koldíoxíði og um 7 þúsund tonn af brennisteinsvetni á ári. Styrkurinn sem Silfurbergsverkefnið hlaut verði notaður fyrir hönnun og byggingu stærri og öflugri stöðvar við virkjunina sem stefnt sé á að gangsetja árið 2025. Þar með verði nær öll losun koldíoxíðs og brennisteinsvetnis frá virkjuninni hreinsuð, eða um 34 þúsund tonn af koldíoxíði og um 12 þúsund tonn af brennisteinsvetni á ári.

„Það er mikil viðurkenning fyrir ungt þekkingarfyrirtæki eins og Carbfix að fá svo veglegan styrk úr nýsköpunarsjóðnum og til merkis um að kolefnisförgun með Carbfix tækninni er í senn hagkvæm og umhverfisvæn loftslagslausn sem getur haft áhrif langt út fyrir landsteinanna," er haft eftir Eddu Sif Pind Aradóttur, framkvæmdastýru Carbfix.