Carlos Cruz hefur tekið við starfi forstjóra Vífilfells, en hann tekur við starfinu af Árna Stefánssyni sem hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Carlos var áður framkvæmdastjóri sölumála hjá Refrige SA í Portúgal frá árinu 2009. Refrige SA er átöppunarfyrirtæki fyrir The Coca-Cola Company og hluti af Coca-Cola Iberian Partners sem er í eigu Cobega SA á Spáni. Fyrir það starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu Scottish & Newcastle Ibérica á Spáni. Carlos er 47 ára gamall og með meistaragráðu í stjórnun frá ESERP Viðskiptaháskólanum í Madrid.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Árni hefur þó ekki sagt skilið við Vífilfell og mun taka sæti í stjórn fyrirtækisins. Sem stjórnarmaður mun hann vinna í málum tengdum framtíðarþróun fyrirtækisins ásamt því að sinna öðrum verkefnum fyrir eigendur fyrirtækisins sem ekki tengjast Vífilfelli.

Árni hefur starfað fyrir Vífilfell frá árinu 1998 og verið forstjóri síðustu 10 ár. „Við erum þakklát fyrir það góða starf sem Árni hefur innt af hendi og afar ánægð að hann muni starfa með okkur áfram að þróunarverkefnum sem stjórnarmaður í Vífilfelli,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.