Danska brugghúsið Carlsberg mun fækka starfsmönnum um allt að 150 í Evrópu á næstunni vegna erfiðra aðstæðna í efnahasgslífi Evrópu.

Fækkunin verður mest í Danmörku og Póllandi, um 90 starfsmenn.  Eru uppsagnirnar nauðsynlegar vegna minnkandi bjórneyslu. Er spáð áframhaldandi samdrætti á næstunni.

Um 41.000 starfsmenn stafa hjá Carlsberg.

Carlsberg.
Carlsberg.