Fidel Castro hefur tilkynnt að hann segi af sér sem forseti Kúbu og yfirmaður hersins, en ríkisdagblaðið á Kúbu, Granma, birti afsagnarbréf hans fyrir stundu. Castro er 81 árs og hefur ekkert komið fram opinberlega síðan hann framseldi völd til yngri bróður síns Raul í júlí 2006, eftir að hafa gengist undir skurðaðgerð.