James Cayne hætti í janúar sem forstjóri Bear Stearns eftir að hafa gegnt því starfi frá 1993. Hann hefur ekki svarað fjölmiðlum frá því Bear Stearns bankinn var seldur á 2 dollara á hlut. Fréttamaður Reuters náði þó í hann í gærkvöldi, en fékk aðeins þau svör að Jimmy tali ekki við fréttamenn.

Cayne keypti nýlega tvær íbúðir á 27,5 milljónir dollara, en líklega sér hann eftir því núna. Hann á um 7 milljón hluti í Bear Stearns, sem nú er 14 milljón dollara virði. Fyrir ári síðan var þessi hlutur metinn á 1 milljarð dollara.

Cayne ætti þó að hafa efni á sínu aðaláhugamáli áfram, en það er að spila bridds. Hann var í liði Bandaríkjanna sem keppti um heimsmeistaratitilinn í bridds, þ.e. Bermúdaskálina, árið 1995.