Tölvuleikjaframleiðandinn CCP býður til DUST 514 Orrustu í Norðurljósasal Hörpu dagana á morgun föstudag og laugardag. Þar gefst gestum kostur á að prófa nýjan tölvuleik fyrirtækisins, DUST 514, sem nýlega var gerður aðgengilegur almenningi í svokallaðri Beta prufuútgáfu. Heppnir þátttakendur geta unnið Playstation 3 tölvu.

Í tilkynningu frá CCP er viðburðurinn hluti af UTmessunni sem fram fer í Hörpu 8.-9. febrúar. Tilgangur messunnar er ekki síst að sýna almenningi hversu stór og umfangsmikil þessi grein er orðin á Íslandi. Á UTmessuna mæta mörg helstu tölvu- og tæknifyrirtæki landsins, kynna starfsemi sína og taka þátt með einum eða öðrum hætti.