Hugbúnaðarfyrirtækið CCP hlaut Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins við veglega athöfn sem fram fór í dag og veitti Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP verðlaununum móttöku. Það var Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra sem afhenti verðlaunin.

„Tölvufyrirtækið CCP er skýr vitnisburður um það því þó félagið eigi sér ekki langa sögu hefur það vaxið hratt undanfarið og rekur nú starfsemi í fjórum löndum,“ sagði Sigurður Már Jónsson, ritstjóri Viðskiptablaðsins við athöfnina.

Til gamans má geta þess að fyrir þremur árum síðan ákvað Viðskiptablaðið að veita Hilmari Veigari Péturssyni, forstjóra CCP, frumkvöðulsverðlaun blaðsins. Nú er hins vegar komið að því að hann - og þá um leið félagið - hljóti Viðskiptaverðlaun ársins. Það er í fyrsta skipti í 14 ára sögu verðlaunanna sem frumkvöðull færist yfir í að hljóta Viðskiptaverðlaunin.

CCP hf. var stofnað árið 1997 og er markmið félagsins að vera leiðandi aðili í því að búa til fjölþátttökuleiki sem spilaðir eru yfir netið. Fyrsti leikurinn, EVE Online, fór i loftið árið 2003 og hefur síðan verið í stöðugri uppbyggingu.

Þeir sem þekkja til í leikjaheiminum ljúka uppi einum munni um að CCP sé með mjög áhugaverða framleiðslu sem virðist höfða mjög sterkt til markhópsins. Félagið hefur markað sér skýra stöðu, er með sterka framtíðarsýn og er á þröskuldi þess að verða að því stórfyrirtæki sem íslenskt atvinnulíf getur horft til.

Í tímariti Viðskiptablaðsins, Áramót, er að finna ítarlegt viðtal við Hilmar Veigar.