Tölvuleikjaframleiðandinn CCP hefur tilkynnt um útgáfu á nýjum tölvuleik, Gunjack fyrir farsíma og Gear VR útbúnað Samsung. Fyrirtækið mun kynna leikinn fyrir blaðamönnum og starfsmönnum tölvuleikjaiðnaðarins á Gamescom ráðstefnuninni sem hefst á morgun, miðvikudag, í Köln í Þýskalandi. Á sömu ráðstefnu, sem er sú stærsta sinnar tegundar í Evrópu, kynnir fyrirtækið jafnframt annan væntanlegan leik sinn, EVE: Valkyrie, sem koma mun út fyrir PlayStation 4 leikjavélar SONY og Oculus Rift sýndarveruleikabúnað Oculus VR á PC.

Fram kemur í tilkynningu að Gunjack er hannaður fyrir sýndarveruleika (VR) og nýjan útbúnað farsímaframleiðandans Samsung; Samsung Gear VR. Leikurinn leit fyrst dagsins ljós sem prufútgáfa á EVE Fanfest hátíðinni í Reykjavík í maí á þessu ári, þar sem ráðstefnugestum gafst kostur á að prófa ýmsar leikjatilraunir CCP í sýndarveruleika í tilraunastofunum VR Labs. Í ljósi þeirra ákvæðu viðbragða sem prufuútgáfan, sem þá gekk undir nafninu “Project Nemesis, fékk var ákveðið að halda áfram með þróun verkefnis og úr varð fullgerður leikur; Gunjack.

Gunjack er þróaður á skrifstofu CCP í Shanghai í Kína. Leikurinn gerist í EVE heiminum og býður spilurum upp á hraða og spennandi atburðarrás í fallegu og grípandi  framtíðarumhverfi.

“Markmið okkar var hvorki meira né minna en að skapa besta leikinn fyrir Gear VR búnaðinn. Fólkið sem sem vann að leiknum lagði áherslu á að skapa eins spennandi og fallegan leik fyrir þennan nýja vettvang og og mögulegt er. - og við erum mjög stolt af útkomunni,” segir Jean-Charles Gaudechon, framleiðslustjóri Gunjack, CCP í Shanghai í tilkynningu.

“Við trúum því að sýndarveruleiki, VR, sé einn af lykilþáttum leikjaframleiðslu framtíðarinnar. Það mun ef til vill taka einhvern tíma þar til þetta nýja form nær almennri útbreyðslu, en við hjá CCP ætlum okkur að halda áfram að vera í fararbrodd á þessu sviði. Þannig að þegar þessi tækni nær enn frekari fótfestu þá verði það leikir okkar sem sýni hvað best hverskonar upplifun hún getur fært notendum sínum,” segir Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP.