Century Aluminum er eina félagið í Kauphöllinni sem hefur hækkað í morgun, en gengi bréfa þess hefur hækkað um 5,7% frá opnun markaða.

Straumur fjárfestingabanki og Atlantic Petroleum leiða lækkanir dagsins, en hvort félag um sig hefur lækkað um rúm 4,5%. Bakkavör, Færeyjabanki, Eimskipafélagið og Össur hafa lækkað minna.

Heildarvelta það sem af er degi nemur 134 milljónum króna.