Bandaríski álframleiðandinn Century Aluminum, sem skráð er í Kauphöllinni hér á landi, tilkynnti í morgun að félagið hafi selt alla hluti sína í Gramercy Alumina og St. Ann Bauxite Limited til Noranda Aluminum Holding en Century átti 50% hluti í félaginu ásamt öðrum.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að félagið á nú engan hlut í fyrrnefndum fyrirtækjum. Þá kemur einnig fram að fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans (NBI) hafi veitt ráðgjöf við söluna.